Bar vitni í klukkutíma áður en uppgötvaðist að hún talaði ekki ensku Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2014 15:16 Lögmennirnir kenndu upphaflega mállýsku konunnar og hljómburði dómssalarins um að þeir skildu lítið hvað hún var að segja. Vísir/Getty
Kona sem sakar afrískan prest um að hafa nauðgað sér talaði úr vitnastúku í breskum dómssal í rúma klukkustund áður en einhver benti á að hún var í raun ekki að tala ensku. Lögmenn báðu konuna, sem talar sérstaka tungu sem töluð er á ákveðnum svæðum í Síerra Leóne, ítrekað um að tala hægar og vera ekki svona nálægt hljóðnemanum. Kenndu lögmennirnir mállýsku hennar og hljómburði dómssalarins um að þeir skildu lítið í hvað hún var að segja.Í frétt Telegraph segir að dómritarinn Christiana Kyemenu-Caiquo, sem einnig kemur frá Síerra Leóne, hafi að lokum beðið um orðið og bent lögmönnum á að vitnið væri í raun ekkert að tala ensku, heldur mál sem gengur undir nafninu Krio. Dómari brást þá við með því að biðja dómritarann um að vera „staðgengill“ konunnar í vitnastúku og tók sæti hennar. Segir að Kyemenu-Caiquo hafi hins vegar komið að takmörkuðu gagni í vitnastúkunni þar sem svarið við nánast öllum spurningum sem beindust að konunni voru „ég man það ekki.“ Sjálfskipaði „erkibiskupinn“ Gilbert Deya er sakaður um að hafa nauðgað fjórum konum, auk tveggja kynferðisárása og líkamsárásar. Presturinn, sem kemur upprunalega frá Kenya, rekur Gilbert Deya Ministries, en áætlað er að sóknarbörn kirkjunnar í Bretlandi telji um 36 þúsund manns.
Mest lesið „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Fleiri fréttir Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Sjá meira