Lampard: Hélt ég myndi ekki ná þessum áfanga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. desember 2014 12:07 Lampard þakkar Samir Nasri fyrir stoðsendinguna á sig gegn Leicester í gær. vísir/getty
Sem kunnugt er komst Frank Lampard upp að hlið Thierry Henry á listanum yfir markahæstu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann skoraði sigurmark Manchester City gegn Leicester City í gær. Markið sögulega má sjá hér að neðan. „Ég er mjög ánægður með þennan áfanga, ég hélt að ég myndi ekki ná þessu. Ég ber mikla virðingu fyrir Henry, hann er einn af þeim bestu í sögu úrvalsdeildarinnar,“ sagði Lampard eftir leikinn gegn Leicester. Hann hefur nú skorað 175 mörk í 588 leikjum í úrvalsdeildinni, en hann og Henry eru í jafnir í 4. sæti á markalistanum. Alan Shearer trónir á toppi hans, en hann skoraði á sínum tíma 260 mörk fyrir Newcastle og Blackburn. Andy Cole er í öðru sæti með 187 mörk og Wayne Rooney kemur þar á eftir með 178 mörk. Frank Lampard hefur skorað þessi 175 mörk fyrir þrjú félög. Hann skoraði 24 mörk fyrir West Ham, 147 fyrir Chelsea og nú fjögur fyrir Manchester City. Það er þó óvíst hvort mörkin verði mikið fleiri hjá Lampard, en hann er á láni hjá City frá bandaríska liðinu New York City. Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Man City, hefur þó lýst yfir áhuga á að framlengja dvöl Lampards hjá Englandsmeisturunum.
Enski boltinn Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Sjá meira