Barkley með frábært mark og Everton fór upp fyrir Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2014 12:15 Ross Barkley Vísir/AFP
Ross Barkley skoraði stórglæsilegt mark þegar Everton vann 3-1 sigur á Queens Park Rangers í lokaleik sextándu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Everton vann þarna langþráðan sigur en liðið hafði aðeins náð í eitt stig í síðustu þremur deildarleikjum sínum. Með sigrinum komst Everton upp í 10. sæti deildarinnar og fór þar með upp fyrir nágranna sína í Liverpool á marktölu. Queens Park Rangers náði ekki að vinna tvo leiki í röð í fyrsta sinn á tímabilinu en lærisveinar Harry Redknapp eru búnir að tapa öllum átta útileikjum sínum á leiktíðinni og markatalan er -17 (3-20). Ross Barkley kom Everton í 1-0 með stórglæsilegu marki á 33. mínútu þegar hann lék á varnarmann og lét vaða af löngu færi upp í bláhornið. Boltinn var á uppleið allan tímann og þandi út netmöskvanna. Kevin Mirallas skoraði annað mark Everton með skoti beint úr aukaspyrnu á 43. mínútu en skotið breytti mikið um stefnu af varnarvegginum. Steven Naismith skoraði síðan þriðja markið með skalla á 53. mínútu eftir fyrirgjöf frá Aiden McGeady. Bobby Zamora minnkaði muninn á 80. mínútu en þetta var fyrsta mark hans á tímabilinu.
Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Sjá meira