Koeman: Þeir sýndu mér enga virðingu | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. desember 2014 17:00 Ronald Koeman var svekktur eftir tapið. vísir/getty
Það gengur hvorki né rekur hjá Southampton þessa dagana, en liðið er búið að tapa fjórum leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni og féll úr leik í deildabikarnum í gærkvöldi. Dýrlingarnir töpuðu, 1-0, gegn C-deildarliðinu Sheffield United í gær sem var fimmta tap liðsins í röð í öllum keppnum, en það hefur aðeins gert eitt jafntefli síðustu sex leikjum. Eftir leikinn neitaði Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Southampton, að taka í höndina á Nigel Clough, stjóra Sheffield. „Á 95 mínútum sýndu þeir mér enga virðingu, bekknum hjá Southampton enga virðingu og fjórða dómaranum enga virðingu,“ sagði Koeman við Sky Sports eftir leikinn. „Ég þurfti að sýna hvað mér fannst. Ef þjálfarar og leikmenn láta svona hef ég áhyggjur af framtíðinni. Ég vil samt ekki fara nánar út í þetta.“ „Engin virðing er engin virðing. Það er að nota orð sem ég nota ekki. Það inniheldur fjóra stafi,“ sagði Koeman. Nigel Clough kom af fjöllum þegar fréttamaður Sky Sports sagði Koeman hafa sagt Sheffield-menn vera dóna. „Við blótuðum ekkert þannig við vitum ekki hvað málið er. Ég setti hendina út en hann tók ekki í hendina á mér. Ég veit ekki hvað hann á við. Mesta óvirðingin er að taka ekki í hönd hins þjálfarans, sérstaklega þegar þú tapar,“ sagði Nigel Clough. Viðtölin við þjálfarana má sjá sér.
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira