Sautján ára strákur gæti varið mark Newcastle um næstu helgi Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. desember 2014 15:00 Jan Alnwick meiddist á öxl. vísir/getty
Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle, mun ræða við forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar um þann möguleika að fá leyfi til að fá markvörð að láni fyrir leik liðsins gegn Sunderland á sunnudaginn. Félagaskiptaglugginn er lokaður, en lið hafa áður fengið undanþágu til að bæta við markverði. Manchester City fékk Marton Fulop á neyðarláni í apríl 2010 þegar Shay Given og Stuart Taylor voru báðir meiddir, en þá var Joe Hart á láni hjá Birmingham. Tim Krul, aðalmarkvörður Newcastle, er meiddur líkt og varamarkvörðurinn Rob Elliot. Þriðji markvörður liðsins, Jan Alnwick, hefur spilað síðustu þrjá leiki, en hann meiddist á öxl í deildabikarnum gegn Tottenham í gær. „Það á ekki að vera möguleiki að 17 ára strákur fái að byrja í markinu í úrvalsdeildinni,“ sagði Pardew um hinn kornunga Freddie Woodman sem sat á bekknum hjá Newcastle í gær. „Alnwick meiddist á öxl og við munum skoða það. Við munum kannski tala við úrvalsdeildina um stöðu hans.“ Ekki er líklegt að þetta gangi í gegn hjá Newcastle þar sem talsmaður úrvalsdeildarinnar sagði í síðustu viku að félagið mætti ekki fá markvörð á neyðarláni þar sem það væri með þrjá heila markverði. Þar var talað um Alnwick, Woodman og Karl Darlow, sem er á láni hjá Nottingham Forest í B-deildinni. „Aðeins lið með einn heilan markvörð geta nýtt sér þennan möguleika.“ Freddie Woodman, sem er sonur markvarðaþjálfara liðsins, er í U19 ára landsliði Englands og var á láni hjá Hartlepool í byrjun leiktíðar. Hann hefur aldrei spilað fyrir aðallið Newcastle.
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira