Stórslys í Danmörku: "Það hafa verið hjálparenglar sem vöktu yfir henni“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. desember 2014 20:32 mynd/dr/Brian Rasmussen
Tuttugu og þriggja ára danskur vörubílstjóri hefur verið sakaður um manndráp af gáleysi eftir að hafa valdið stórslysi á hraðbraut E45 í Horsens í Danmörku í gær. Þrír létust og sautján slösuðust. Íslensk kona er á meðal hinna slösuðu. Tildrög slyssins eru enn að einhverju leyti óljós, og er rannsókn málsins nú í höndum lögreglu. Lögreglan segir þó allt benda til þess að vörubílstjórinn sé sá sem olli slysinu. Á vef danska ríkisútvarpsins segir að maðurinn hafi reynt að komast framhjá umferð, sem var í hægagangi vegna annars umferðaróhapps sem átti sér þar stað skömmu áður og þannig orðið valdur að dauða tveggja stúlkna, 19 og 21 árs og 54 ára karlmanns. Íslenska konan sem slasaðist heitir Inga Rún Harðardóttir og er listakona sem hefur verið búsett í Danmörku í fjölmörg ár. Móðir hennar, Birna Ágústsdóttir er hjá henni á sjúkrahúsinu í Árósum en hún segir í samtali við RÚV að Inga Rún hafi verið sett í korsett og verði í því næstu þrjá mánuðina. Hún sé með meðvitund og hafi getað lýst slysinu. „Maður getur ekki skilið hvernig lifandi manneskja komst út úr þessum bíl. Það hafa verið hjálparenglar sem vöktu yfir henni, því hún var samanklemmd í bílnum. Hún slapp ótrúlega vel, við erum bara orðlaus,“ sagði Birna í samtali við RÚV.
Mest lesið Vilja að konur uppgötvi sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent Rafmagn er farið af í miðbæ Reykjavíkur Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Innlent „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Allir umsækjendurnir metnir jafn hæfir Innlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent