Sat inni í 39 ár vegna lygi tólf ára drengs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. nóvember 2014 10:59 Eina vitnið sem tengdi Jackson við morðið hefur viðurkennt að hafa logið við málsmeðferðina árið 1975. Vísir/Getty
Karlmaður sem sat inni í tæpa fjóra áratugi eftir að hafa verið dæmdur fyrir morð verður að óbreyttu látinn laus á föstudaginn. Eina vitnið sem tengdi manninn við morðið hefur viðurkennt að hafa logið við málsmeðferðina árið 1975. Maðurinn sem heitir Ricky Jackson hafði óskað eftir endurupptöku málsins. Hann grét hástöfum með hendurnar fyrir andlitinu þegar saksóknari viðurkenndi að Jackson ætti að láta lausn eftir að maðurinn breytti vitnisburði sínum. Jackson hafði setið inni í 39 ár en hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð. Aðeins á eftir að ganga frá pappírum og þá ætti Jackson, sem var tvítugur þegar hann hlaut dóminn, að verða frjáls ferða sinna.Tólf ára þegar hann laugSaksóknarinn í málinu sagði engan grundvöll fyrir málinu eftir að Eddie Vernon, eina vitnið í málinu, viðurkenndi lygi sína. Vernon var tólf ára þegar hann laug fyrir dómi en hann segist hafa verið hvattur til þess af lögreglu. Hann hafi lifað með lygi sinni þar sem honum hafi verið hótað að foreldrum hans yrði ella stungið í steininn. Vernon sakaði Jackson og tvo bræður um morðið á peningaflutningsmanni í Cleveland í maí 1975. Lögregla greindi frá því að maðurinn hefði verið barinn, skotinn auk þess að verða fyrir sýruárás nærri matvöruverslun í borginni. Engin sönnunargögn tengdu mennina þrjá við verknaðinn að frátöldum vitnisburði Vernon. Mennirnir voru allir dæmdir. Vernon heldur því fram að hann hafi reynt að þóknast lögreglu og vini sínum á sínum tíma. Þeir hafi komið upplýsingunum til hans og úr hafi orðið lygavefur. Hann segist hafa komið nöfnum mannanna til yfirvalda því hann taldi sig vera að gera hið rétta. „Ég var mataður af upplýsingum,“ sagði Vernon sem breytti framburði sínum eftir að hafa rætt við prest. „Ég hef engar upplýsingar um hvað gerðist á vettvangi.“ Engin leið að sjá hvað gerðist Hann staðfestir að hafa verið um borð í strætisvagni þegar hann heyrði tvo hvelli. Hann hafi hins vegar ekki séð hvað gerðist. Aðrir farþegar staðfestu að engin leið hefði verið að sjá hvað gerðist við matvöruverslunina. Saksóknari var í fyrstu efins um framburð Vernon en viðurkenndi síðar að enginn grundvöllur væri fyrir málinu. Dómari hrósaði saksóknara fyrir að hafa látið málið niður falla. Lögmenn bræðranna, Wiley og Ronnie Bridgeman, hafa óskað eftir endurupptöku á málinu í ljósi nýrra upplýsinga. Ronnie sat inni í 25 ár fyrir glæpinn en bróðir hans situr enn inni. Saksóknari reiknar ekki með því að ákæra Vernon fyrir lygina að því er AP greinir frá.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Sjá meira