Fangi barnaði fjóra fangaverði Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. nóvember 2014 14:58 Hér má sjá fangelsið í Baltimore. Vísir/Getty
Við rannsókn á glæpagengi innan veggja fangelsa í borginni Baltimore í Bandaríkjunum kom í ljós að einn fanginn hafði barnað fjóra kvenkyns fangaverði og að tvær þeirra hefðu látið flúra nafn hans á líkama sinn. Í skýrslu fangelsyfirvalda í borginni kemur fram að konurnar hafi hjálpað til við að smygla varningi inn í fangelsið Baltimore City Jail. Meðal þess sem þær smygluðu inn í fangelsiðið voru farsímar og fíkniefni.CBS greinir frá. Alls voru gefnar út kærur á hendur tuttugu og fimm manns í tengslum við rannsóknina. Þar af voru þrettán kvenkyns fangaverðir, sjö fangar og fimm manns sem voru fyrir utan fangelsisveggi. Allir þeir sem kærðir voru eru taldir tengjast glæpasamtökum sem kalla sig Black Guerilla Family. Unnið er að því að reka alla kvenkyns fangaverðina. Meðal ákæruliða eru fjárglæfrastarfsemi, peningaþvottur og fíkniefnasala. Földu varning í skónum Talið er að fangaverðirnir hafi falið varninginn sem þeir smygluðu inn í fangelsið í skónum sínum. Konurnar smygluðu farsímum, maríjúna, svokölluðu læknadópi og sígarettum inn í fangelsið þar sem meðlimir Black Guerilla Family seldu öðrum föngum varninginn. Hingað til hafa fangaverðir ekki þurft að fara úr skónum í öryggisleit þegar þeir koma inn í fangelsin í Baltimore. Væntanlega verður breyting á því. Í skýrslu fangelsismálayfirvalda í borginni kemur fram að leiðtogi glæpasamtakanna heiti Tavon White. Í skýrslunni kemur fram að hann hafi grætt um tvær milljónir króna á smyglinu einn mánuðinn sem það fór fram. White barnaði fjórar konur sem tóku þátt í smyglhringnum. Tvær þeirra voru með nafn hans húðflúrað á líkama sinn; ein á hálsinn og önnur á úlnliðinn. Hann gaf þeim tveimur og einni annari konunni sem hann barnaði dýrar gjafir, þar á meðal dýra skartgripi og lúxusbíla. Ekkert hefur verið fjallað um fjórðu konuna sem hann barnaði, en skildi eftir útundan þegar hann dreifði gjöfum til kvennanna sem báru börn hans undir belti. Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt CBS um málið.
Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira