Seinka afhendingu herskips til Rússa Samúel Karl Ólason skrifar 25. nóvember 2014 16:55 Um er að ræða tvö skip af Mistral gerð, sem geta borið 16 þyrlur, 13 skriðdreka, 450 hermenn og sjúkrahús. Vísir/AFP
Frakkar munu ekki afhenda Rússum tvö herskip um óákveðinn tíma vegna deilunnar í Úkraínu. Francois Hollande, forseti Frakklands, tilkynnti þetta í dag. Hann sagði að ástandið í Úkraínu komi í veg fyrir afhendingu fyrra skipsins af tveimur. Rússar hafa varað Frakka við alvarlegum afleiðingum, verði skipi‘ ekki afhent í lok nóvember. Aðstoðarvarnamálaráðherra Rússlands segir þó að Rússland muni vera þolinmótt og ætli ekki að leggja fram kæru fyrir alþjóðadómstólum. Með aðgerðum sínum er Frakkar að rjúfa samning sinn við Rússa. Um er að ræða tvö skip af Mistral gerð, sem geta borið 16 þyrlur, 13 skriðdreka, 450 hermenn og sjúkrahús. Fyrra skipið átti að vera afhent fyrr í mánuðinum, samkvæmt upprunalega samkomulaginu sem undirritað var árið 2011.AFP fréttaveitan segir Frakka hafa fundið fyrir gífurlegum þrýstingi frá bandamönnum sínum og þá sérstaklega Bandaríkjunum vegna málsins. Yfirvöld í París eru í mikilli klípu og gætu þurft að borga miklar sektir, rjúfi þeir samning þjóðanna. Hins vegar mun Frakkland finna fyrir reiði bandamanna sinna, verði skipin afhent. „Sama hver ákvörðun okkar verður, mun helmingur jarðarinnar vera reiður okkur,“ segir ónefndur embættismaður við AFP. Ekki kemur til greina að selja skipin til annars lands en Rússlands, þar sem Rússar hafa þegar sett viðkvæman búnað um borð. Þeir munu ekki taka í mál að hann lendi í höndum annarra. yfirvöld í París vonuðu að vopnahléið í Úkraínu myndi hjálpa til við að skapa andrúmsloft þar sem mögulegt hefði verið að afhenda skipin. Það hefur ekki gengið eftir og hefur ástandið í Úkraínu versnað undanfarið eftir að Rússar hafa verið sakaðir um að senda uppreisnarmönnum í Austur-Úkraínu birgðir og menn.
Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira