Fótbolti

Fyrrum landsliðsmarkvörður Þýskalands fer í Wrestling

Wiese hefur bætt á sig miklu kjöti frá því þesi mynd var tekin.
Wiese hefur bætt á sig miklu kjöti frá því þesi mynd var tekin. vísir/getty
Það er misjafnt hvað knattspyrnumenn taka sér fyrir hendur þegar knattspyrnuferlinum lýkur.

Tim Wiese, fyrrum landsliðsmarkvörður Þýskalands, er búinn að vera mikið í ræktinni síðan hann hætti og ætlar að gerast atvinnumaður í sýndaríþróttinni Wrestling.

Hann mun væntanlega koma fram í fyrsta skipti um helgina á Wrestling-kvöldi í Frankfurt. „Bardagi" með honum er ekki á dagskrá en þýskir fjölmiðlar segja að uppákoma verði með honum á milli keppna.

Wiese er enn í viðræðum við alþjóðasambandið, WWE, um samning en þeir eru mjög spenntir að fá hann inn.

Markvörðurinn spilaði átta landsleiki fyrir Þýskaland og lék lengst með Werder Bremen og Hoffenheim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×