Grunaður um að hafa neytt dóttur sína til að gleypa hálft kíló af kókaíni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. nóvember 2014 23:35 Dæmi um kókaínhylki. Vísir/Getty
11 ára gömul stúlka frá borginni Cali í Kólumbíu er heppin að vera á lífi eftir að hún gleypti yfir 100 hylki af kókaíni. Talið er að faðir stúlkunnar hafi neytt hana til að gleypa hylkin. Hann fór með dóttur sína á sjúkrahús á sunnudaginn eftir að hún hafði kvartað yfir magaverkjum. Móðirin hefur síðan dvalið með stúlkunni á spítalanum og leitar lögreglan nú að föðurnum þar sem hann er grunaður um að hafa látið dóttur sína gleypa kókaínið. Í frétt Guardian segir að læknar hafi fjarlægt 104 hylki úr stúlkunni, eða um hálft kíló af kókaíni. Stúlkan er enn meðvitundarlaus en gæti þó útskrifast af sjúkrahúsi eftir um 10 daga. Barnaverndaryfirvöld í Cali munu þá taka hana í sína umsjá á meðan lögreglan rannsakar málsatvik. Meðal annars á að kanna hvort að móðirin sé viðriðin málið. Alþekkt er að burðardýr gleypi hylki með fíkniefnum og flytji efnin þannig á milli staða. Efnin losa þau síðan út eftir að hafa tekið hægðalosandi lyf. Stúlkan er yngsta burðardýr sem lögreglan í Cali hefur komist á snoðir um.
Mest lesið Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Innlent „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Innlent Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Erlent Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Innlent Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Innlent Tína rusl til að komast á Reyki Innlent Rúta lenti utan vegar Innlent Trausti vill snúa aftur Innlent Fleiri fréttir Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Sjá meira