Fótbolti

Í 50 ára bann fyrir að ráðast á dómara

Anton Ingi Leifsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Ricardo Ferreira, leikmaður Portugal FC, hefur verið dæmdur í 50 ára bann eftir að hafa sparkað bolta í andlit dómara í leik liðsins á dögunum og sprautað á hann vatni.

„Ég bjóst við einu til tveimur árum í mesta lagi, en 50 ár? Fótboltin er mitt líf," sagði hinn 28 ára gamli Ferreira í viðtali.

Lögmaður deildarinnar sagði í viðtali að deildin vildi ekki hafa leikmann eins og Ferreira í sinni deild. Ferreira var ónotaður varamaður í leik gegn SC Worb og í leikslok réðst hann svo að dómaranum.

Hann mun losna úr banninu 5. júní 2064, en þá verður hann 78 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×