Ný rannsókn: Margra barna mæður standa sig best í vinnunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. nóvember 2014 12:20 Margra barna mæður þurfa að skipuleggja sig vel. Vísir/Getty
Ef litið er til þrjátíu ára starfsferils kemur í ljós að mæður standa sig betur í vinnunni en barnslausar konur á nánast öllum sviðum. Mæður með tvö börn eða fleiri standa sig best. Þetta eru niðurstaðar nýlegrar bandarískrar rannsóknar. Washington Post greinir frá. Rannsakendur vildu komast að því hvaða áhrif barnseignir hefðu á konur í fremstu röð. Þeirra leið til þess að bera saman frammistöðu kvenna var að horfa til þess hve margar ritrýndar greinar þær birtu. Úrtakið var rúmlega tíu þúsund hámenntað fólk á sviði hagfræði. Þegar kom að karlmönnum var framlag feðra með eitt barn sambærilegt við barnslausa menn. Menn með tvö börn eða fleiri stóðu sig betur en hinir hóparnir tveir. Munurinn þegar kom að konunum var enn meira áberandi. Rannsakendur komust að því að á fyrstu fimm árum í starfi standa konur, sem aldrei eignast börn, sig mun verr en þær sem verða mæður á einum tímapunkti eða öðrum. Hafa verður í huga að rannsakendur skoðuðu mjög afmarkaðan hóp kvenna sem lifa við lúxusaðstæður ef svo má að orði komast. Barnseignir voru í flestum tilfellum hluti af planinu og því fylgdu fríðindi eins og fæðingarorlof og veikindadagar. Þá höfðu konurnar efni á að greiða fyrir umönnun barna sinna svo þær gætu mætt í vinnuna. Mæður í láglaunastörfum búa yfirleitt ekki við sama munað.Framleiðni barnslausra kvenna og mæðra yfir langan starfsferil.Niðurstöðurnar ættu að vera vítamínssprauta fyrir mæður á vinnumarkaði sem hafa fengið nagandi samviskubit þegar þær hafa ekki náð að skila verkefni á réttum tíma vegna veikinda barns eða verið við það að sofna á fundi eftir andvökunótt með krílunum. Ung börn hafa þó áhrif á vinnuframlag. Framleiðni minnkar um 15-17 prósent hjá mæðrum með ung börn. Fyrir margra barna móður minnkar framleiðni um 9,5 prósent með fyrsta barni, 12,5 prósent með barni númer tvö og 11 prósent með þriðja barni. Mæður með þrjú ung börn minnka því framleiðni móður í vinnu um 33 prósent. En þar sem mæður standa sig betur bæði áður en þær eignast börn og eftir að börnin komast á aldur eru þær betri starfskraftar ef litið er til 30 ára starfsferils. „Á meðan þú ert með ung börn hefur það áhrif á þig,“ segir Christian Zimmermann, einn af rannsakendunum. „Eftir að börnin komast á aldur eru áhrifin öfug.“Niðurstöður rannsóknarinnar má kynna sér í skjalinu hér að neðan.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Fleiri fréttir Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Sjá meira