Erlent

Bauð meintum nauðgara dóttur sinnar í mat og drap hann

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn gaf sig fram við lögreglu um helgina. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Maðurinn gaf sig fram við lögreglu um helgina. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
36 ára karlmaður gaf sig fram við lögreglu á Indlandi um helgina eftir að hafa pyntað og að lokum myrt 45 ára mann sem hann sagði hafa nauðgað fjórtán ára dóttur hans.

Að sögn lögreglu brenndi maðurinn kynfæri hins látna með hitatöngum og kyrkti hann að því loknu. Í miðlinum Indian Express kemur fram að atburðurinn hafi átt sér stað í Khajuri Khas hverfinu í Nýju-Delí.

Talsmaður lögreglu segir að maðurinn hafi greint frá því að hinn látni, sem var birgðasali lyfja sem hann hafi sjálfur átt í viðskiptum við, hafi nauðgað dóttur hans fyrir um tveimur mánuðum. Hann hafi þó ekki tilkynnt málið til lögreglu af ótta við að mannorð dóttur hans yrði lagt í rúst.

Lögregla greinir frá því að faðirinn hafi svo boðið lyfsalanum heim til sín undir því yfirskini að ræða einhver mál. „Hann bauð honum kvöldmat. Að máltíð lokinni réðst hann svo á lyfsalann og batt hann fastan við stól. Hann tók hitatangir og brenndi kynfæri mannsins áður en hann kyrkti hann. Hann mætti svo á lögreglustöð þar sem hann gaf sig fram.“

Maðurinn gaf mjög ítarlega skýrslu um hvernig hann hafi pyntað og drepið manninn, en lögregla fann lík lyfsalans á heimili mannsins.

Lögregla segir að maðurinn hafi greint frá því að lyfsalinn hafi komið á heimili hans fyrir um tveimur mánuðum, á þeim tíma dags þegar hann var sjálfur í vinnunni. Dóttir hans hafi þá verið ein heima og á lyfsalinn að hafa nauðgað stúlkunni og hótað henni öllu illu ef hún myndi segja öðrum frá árásinni.

Í grein Indian Express segir að stúlkan hafi þó sagt föður sínum frá árásinni sama dag, en að hann hafi hins vegar ekki leitað til lögreglu af ótta við að nágrannar og fjölskyldumeðlimir myndu kenna dóttur hans um atburðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×