Fjarlægja minnisvarða um Jobs vegna samkynhneigðar Cook Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2014 14:01 Minnisvarðinn var á háskólasvæðinu í Pétursborg. Vísir/AP
Sérstakur minnisvarði um Steve Jobs, stofnanda Apple, hefur verið tekinn niður á háskólasvæði í Sankti Pétursborg. Ástæðan er nýleg yfirlýsing Tim Cook, forstjóra Apple, um að hann sé samkynhneigður. Minnisvarðinn var í formi stærðarinnar iPhone-síma með mynd af Jobs. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu ZEFS, sem lét reisa minnisvarðann, er bent á að rússnesk lög banni opinbera umræðu um samkynhneigð og kveði á um að refsivert sé að afhjúpa kynhneigð sína opinberlega. Það sé skýring þess að hann hafi verið tekinn niður. „Eftir að forstjóri Apple talaði opinberlega um afbrigðilega kynhegðun var minnisvarðinn tekinn niður í samræmi við rússnesk lög til að vernda börn frá upplýsingum sem hvetja þau til að afneita hefðbundnum fjölskyldugildum,“ segir í tilkynningunni og sagt er frá í frétt Reuters. Cook greindi í síðustu viku frá því opinberlega að hann væri samkynhneigður. „Þó að ég hafi aldrei neitað kynhneigð minni, þá hef ég ekki viðurkennt hana opinberlega heldur þar til nú. Leyfið mér því að tala skýrt: Ég er stoltur af því að vera samkynhneigður og álít það að vera samkynhneigður vera mestu gjöf guðs til mín,“ sagði Cook í pistli sem hann birti á Businessweek á fimmtudaginn. Að sögn fréttaveitunnar Tass á háskólinn að hafa fengið tilkynningu frá ZEFS nokkru áður en Cook greindi frá samkynhneigð sinni um að til stæði að gera við minnivarðann vegna skemmda. ZEFS hefur þó ekki tjáð sig um það.
Tengdar fréttir Forstjóri Apple kemur út úr skápnum Tim Cook segist stoltur af því að vera samkynhneigður og álítur það vera mestu gjöf guðs til sín. 30. október 2014 12:31 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fleiri fréttir Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Sjá meira
Forstjóri Apple kemur út úr skápnum Tim Cook segist stoltur af því að vera samkynhneigður og álítur það vera mestu gjöf guðs til sín. 30. október 2014 12:31