Erlent

Strætóbílstjórinn bauð móður með barn að lokum sæti sitt

Atli Ísleifsson skrifar
Atvikið átti sér stað í chilesku borginni Concepción.
Atvikið átti sér stað í chilesku borginni Concepción. Mynd/Skjáskot
Strætóbílstjóri í chilesku borginni Concepción gafst nýlega upp á að enginn farþega vagnsins sem hann ók bauð móður með ungabarn sæti sitt í fullum vagninum og ákvað því að fara fram með góðu fordæmi og bjóða móðurinni bílstjórasætið.

Þegar aðrir farþegar gerðu sér grein fyrir að lítil hreyfing yrði á strætisvagninum við þessar aðstæður brást að lokum einn farþeganna við með því að bjóða móðurinn sæti sitt.

Myndband af atvikinu var nýlega birt á síðunni LiveLeak og má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×