Erlent

Ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Visinescu er talinn bera ábyrgð á pyntingum og dauða 12 fanga á árunum 1956-1963.
Visinescu er talinn bera ábyrgð á pyntingum og dauða 12 fanga á árunum 1956-1963. Vísir/AFP
Ríkisstjórn Rúmeníu hefur ákært fyrrverandi fangelsisstjórann Alexandru Visinescu fyrir glæpi gegn mannkyninu vegna pyntinga og dauða 12 fanga á árunum 1956-1963.

Á þeim tíma var kommúnistastjórn við lýði í Rúmeníu. Er talið að um hálf milljón manna hafi setið í fangelsi vegna pólitískra skoðana sinna á 6. áratugnum er kommúnistastjórnin reyndi að brjóta á bak aftur alla mótspyrnu á meðal þjóðarinnar.

Í frétt Al Jazeera kemur fram að um 100.000 fangar hafi dáið vegna hungurs, pyntinga og kulda.

Kommúnisminn leið undir lok í Rúmeníu fyrir 25 árum. Árið 1964 var veitt almenn sakaruppgjöf vegna glæpa sem framdir voru í skjóli kommúnistastjórnarinnar á 6. áratugnum. Sárin hafa þó aldrei gróið og er nú reynt að leita réttlætis.

Auk Visinescu eru yfir 30 aðrir fangelsisstjórar sem gætu verið ákærðir fyrir glæpi gegn mannkyninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×