Erlent

Björguðu munaðarlausum sæotri

Atli Ísleifsson skrifar
Dýrið hefur fengið nafnið  Pup681 og var um 2,5 kíló þegar hann fannst.
Dýrið hefur fengið nafnið Pup681 og var um 2,5 kíló þegar hann fannst. Mynd/Skjáskot
Nýjasti íbúi Shedd sædýrasafnsins í Chicago er fimm vikna gamall, munaðarlaus sæotur sem fannst við strendur Kaliforníu fyrir skemmstu.

Dýrið hefur fengið nafnið Pup681 og var um 2,5 kíló þegar hann fannst á Coastways ströndinni milli San Mateo og Santa Cruz. Hann var fluttur til Chicago og segja starfsmenn sædýrasafnsins að hann braggist vel.

Sæotrar eru í útrýmingarhættu, en á vef Vísindavefsins segir að þeir séu afar athafnasamir og félagslyndir og mynda hópa þótt þeir kjósi oft að vera einir og út af fyrir sig.

Í myndskeiðinu að neðan má sjá hvernig starfsmenn sædýrasafnsins í Chicago stjana við Pup681.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×