Erlent

Lestarsamgöngur lamaðar í Þýskalandi vegna verkfalls

Atli Ísleifsson skrifar
Samningaviðræður fóru út um þúfur í gærkvöldi.
Samningaviðræður fóru út um þúfur í gærkvöldi. Vísir/AFP
Lestarsamgöngur eru lamaðar í Þýskaland eftir að fjögurra daga verkfall lestarstarfsmanna hófst í dag. Verkfallið mun standa fram á mánudagsmorgun og hefur verið lýst sem því lengsta í sögu Þýskalands.

Búist er við að verkfallið muni trufla hátíðarhöld vegna 25 ára afmælis falls Berlínarmúrsins, en skipuleggjendur búast við að um tvær milljónir manna leggi leið sína til Berlínar í tilefni af afmælinu.

20 þúsund starfsmenn verkalýðsfélagsins GDL lögðu niður störf í morgun, en Deutsche Bahn vonast til að lögbann verði sett á verkfallsaðgerðirnar.

Í frétt BBC kemur fram að samningaviðræður hafi farið út um þúfur í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×