Erlent

66 börn á spítala eftir að hafa borðað gler

Samúel Karl Ólason skrifar
Krakkar frá fimm skólum á dreifbýlu svæði í norðurhluta landsins þjáðust af niðurgangi, svima, uppköstum og krömpum.
Krakkar frá fimm skólum á dreifbýlu svæði í norðurhluta landsins þjáðust af niðurgangi, svima, uppköstum og krömpum. Vísir/AFP
Að minnsta kosti 66 börn voru flutt á sjúkrahús eftir að hafa borðað skólamáltíð sem einhver hafði mulið gler og grjót út í. Krakkar frá fimm skólum á dreifbýlu svæði í norðurhluta Suður-Afríku þjáðust af niðurgangi, svima, uppköstum og krömpum.

Börnin höfðu borðað baunir sem höfðu fengist í gegnum ríkisverkefni sem ætlað er að fæða fátækt fólk í landinu. Þúsundur íbúa Suður-Afríku reiða sig á mat frá ríkinu, samkvæmt Dailymail. Flest börnin hafa þó verið útskráð af sjúkrahúsum.

Yfirvöld íhuga nú að kæra tvö fyrirtæki sem hafa framleitt matinn, en samningi við þau hefur verið sagt upp. Þá hafa þu lofað að herða eftirlit með framleiðslu matvælana í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×