Erlent

Brennd lifandi fyrir meint guðlast

Jakob Bjarnar skrifar
Salman Masih er sonur kristinna hjóna sem voru drepin í vikunni, af æstum múgi í Lahore, Pakistan, í gær.
Salman Masih er sonur kristinna hjóna sem voru drepin í vikunni, af æstum múgi í Lahore, Pakistan, í gær. ap
Kristið par var brennt lifandi í Pakistan, en þau voru sökuð um guðlast; að hafa svívirt Kóraninn.

Atburðurinn þykir lýsandi fyrir viðkvæmt ástand í Pakistan en þar hafa lög um guðlast verið gagnrýnd harðlega af kristnum mönnum, sem segja að lögin séu einatt misnotuð. Faðir hinnar myrtu konu heldur því fram, í viðtali við BBC, að hún og maður hennar hafi í raun verið drepin vegna launadeilu. Atburðurinn átti sér stað í tiltölulega afskekktu þorpi í Punjab-héraði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×