Erlent

Geimfarar léku sér með vatn í þyngdarleysi

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot
Geimvísindastofnun Bandaríkjanna birti nýverið myndband úr alþjóða geimstöðinni þar sem geimfarar voru að leika sér með vatn og GoPro vél. Mynbandið var tekið upp í sumar af þeim Steve Swanson, Reid Wiseman og Alexander Gerst.

Þeir voru forvitnir um hvernig yfiborð vatns hagar sér í þyngdarleysi og því settu þeir upp þesa litlu tilraun. Það er ótrúlegt að horfa á geimfarana handleika vatnið með þeim hætti sem þeir gera. Teygja á vatnskúlu í stærð við lítin bolta og stinga GoPro myndavél inn í kúluna.

Geimfararnir tóku þetta upp með þrívíddarmyndavél en fyrir þá sem eru með þrívíddarsjónvarp er hægt að horfa á það hér: Timelapse af jörðinni tekið frá ISS

Astronaut - A journey to space from Guillaume JUIN on Vimeo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×