Fæðingarbletturinn á rassinum reyndist vera geirvarta 30. október 2014 10:09 David, sem gaf Vísi heimild til að birta myndirnar, segir geirvörtuna ekki vera mikið til vandræða. Hann segist oft fá spurninguna um hvort finni sérstaklega mikið til þegar einhver snerti geirvörtuna, en hann segir svo ekki vera
Sænskur maður komst nýlega að því að vöxtur á vinstri rasskinn sem hann hélt að væri fæðingarblettur var í raun geirvarta. David hafði tekið eftir að bletturinn, sem hafði verið á rassinum árin á undan, hefði stækkað nokkuð skyndilega og lögun hans breyst. Ákvað hann því að leita til læknis. Læknirinn var fljótur að greina vöxtinn sem geirvörtu og áður en læknisheimsókninni lauk voru aðrir læknar farnir að streyma inn á stofuna til að sjá geirvörtuna með berum augum. David sagði frá reynslu sinni í sænska þættinum Christer och Morgan rapporterar á sænsku ríkisútvarpsstöðinni P3. Sagðist hann vera duglegur að fara á brimbretti og mikið vera í sólinni án þess að bera alltaf á sig sólarvörn. David hafi því leitað til læknis til að athuga hvort í lagi væri með alla fæðingarbletti. David segir frá því að hann hafi farið inn á stofuna, gyrt niður um sig og beðið lækninn sérstaklega um að skoða blett á rassinum. „Hann var orðinn ansi stór og breytt um lögun síðustu árin,“ sagði David. Að sögn David skoðaði læknirinn blettinn og byrjaði svo að segja einhverja frasa á latínu sem hann botnaði lítið í. „Þá reyndist þetta að sjálfsögðu vera geirvarta. Svo kallar hann á læknanema á kandídatsári og allt í einu fer að streyma fólk inn á stofuna með stækkunargler og myndavélar. Þetta sem ég hélt að væri fæðingarblettur var svo geirvarta á rassinum, á vinstri rasskinn.“ David segir að honum þyki það vera mjög sérstakt að vera með geirvörtu á rassinum. „Læknirinn stóð bara og skellihló svo það bergmálaði á göngunum.“ David segir geirvörtuna ekki vera mikið til vandræða. Hann segist oft fá spurninguna um hvort finni sérstaklega mikið til þegar einhver snerti geirvörtuna, en hann segir svo ekki vera. „Hins vegar er hún í beinni línu við venjulegu geirvöruna á vinstri framhlið líkamans. Að sögn lækna er þetta í beinni lóðréttri línu.“ Í lok viðtalsins segist David í gamansömum tón nú íhuga að fá sér gat í geirvörtuna. Vísir hafði samband við David og fékk góðfúslegt leyfi til að birta myndirnar. David bað jafnframt um að eftirnafn hans kæmi ekki fram.Mynd/Úr einkasafni.
Mest lesið Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Erlent Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Erlent Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Fleiri fréttir Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Sjá meira