Erlent

Afhjúpuðu rasisma lögreglunnar

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Félagarnir fengu aðrar viðtökur þegar þeir voru komnir í hefðbundinn klæðnað múslima.
Félagarnir fengu aðrar viðtökur þegar þeir voru komnir í hefðbundinn klæðnað múslima. Skjáskot úr myndbandinu
Félagsleg tilraun þeirra Adam Saleh og Sheikh Akbar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu en með meðfylgjandi myndbandi segjast þeir hafa sannað rasisma af hálfu lögreglunnar. Þeir telja sig hafa fengið sérstaka meðferð aðeins vegna þess að þeir voru klæddir í hefðbundinn klæðnað múslima.

Í ummælum við myndbandið sem eru þegar orðin tæplega 3700 aðeins degi eftir að myndbandið var sett á netið má sjá marga reiðast vegna þess hvernig lögreglan kemur fram við mennina á meðan aðrir reyna að réttlæta aðgerðir lögreglunnar.

Félagarnir Adam Saleh og Sheikh Akbar eru vinsælir á Youtube þar sem þeir ganga undir nafninu TrueStoryASA. Við gerð myndbanda sinna þótti þeim áberandi hversu ólíkt viðmót lögreglunnar var gagnvart þeim þegar þeir klæddust klæðnaði úr heimalandi sínu. Þeir ákváðu því að framkvæma félagslega tilraun og sýna fram á það í eitt skipti fyrir öll að lögregla kemur öðruvísi fram við þá sem klæðast ákveðnum fötum eða eru með ákveðið útlit.

Í myndbandinu sést hvernig vinirnir tveir, klæddir í gallabuxur og stuttermaboli, rífast og ýta við hver öðrum beint fyrir framan nefið á lögreglumanni sem stendur hjá. Lögreglumaðurinn grípur ekki til neinna aðgerða né segir nokkuð við mennina þrátt fyrir að það líti út fyrir að stutt sé í slagsmál. Tuttugu mínútum síðar koma þeir aftur, nú íklæddir kyrtlum frá heimalandinu. Þeir hefja sama rifrildi en nú bregst lögreglumaðurinn ókvæða við og spyr hvað sé í gangi. „Af hverju eruð þið að rífast? Af hverju eruð þið klæddir svona?“ spyr lögreglumaðurinn og lætur annan mannanna standa upp við vegg þar sem hann þreifar á honum og spyr hvort hann sé vopnaður. Myndbandið má sjá hér að ofan og er sjón sögu ríkari.

„Of margir saklausir einstaklingar eru stoppaðir og leitað á þeim á hverjum degi vegna þess hvernig þeir klæða sig eða vegna þess að þeir hafa ákveðinn húðlit,“ segja mennirnir á Youtube. Þeir segjast á móti slíkum steríótýpum og að þeir voni að sem flestir breiði út þann boðskap að tekin sé afstaða gegn slíku. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×