Evrópuþingið samþykkir framkvæmdastjórn Juncker Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2014 10:54 Jean-Claude Juncker mun taka við starfi forseta framkvæmdastjórnar ESB af José Manuel Barroso í byrjun næsta mánaðar. Vísir/AFP
Evrópuþingið samþykkti í morgun nýja framkvæmdastjórn Jean-Claude Juncker sem mun taka til starfa í byrjun næsta mánaðar. Nýir framkvæmdastjórar hafa verið yfirheyrðir af þingmönnum Evrópuþingsins síðustu vikur. Juncker gerði nokkrar breytingar á framkvæmdastjórninni í kjölfar andstöðu þingmannanna, en framkvæmdastjórnin í heild sinni þarf að vera samþykkt af þinginu áður en hún getur tekið til starfa. 423 þingmenn samþykktu framkvæmdastjórnina, 209 greiddu atkvæði gegn henni og 67 sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Framkvæmdastjórnin á frumkvæði að nýrri löggjöf sambandsins, gætir sameiginlegra hagsmuna ESB, stýrir daglegri framkvæmd á stefnum sambandsins og ráðstöfun á fjármunum, auk þess að hafa eftirlit með beitingu sáttmála og afleiddum reglum sambandsins. Hvert og eitt aðildarríki sambandsins á einn fulltrúa í framkvæmdastjórninni sem er þó ætlað að gæta hagsmuna sambandsins í heild, en ekki einstaka aðildarríkja. Juncker sagði í ræðu sinni að það væri „aumkunarvert“ að honum hafi ekki tekist að vera með fleiri en níu konur í framkvæmdastjórn sinni, þrátt fyrir að hann hafi sérstaklega beint þeim orðum til aðildarríkja að tilnefna konur. Þingmenn klöppuðu sérstaklega þegar Juncker lét orðin falla. „Ég skammast mín svolítið fyrir þetta þar sem Lúxemborg tilnefndi ekki konu, en ég mun sjálfur ekki geta skipt um kyn á næstunni,“ sagði Juncker sem gegndi embætti forsætisráðherra Lúxemborgar um margra ára skeið.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Sjá meira