Vill aflýsa Afríkumótinu vegna Ebólu Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. október 2014 22:45 Óvíst er hvort Afríkumeistararnir komist á mótið. vísir/getty
Vincent Enyeama, markvörður Nígeríu, biðlar til knattspyrnusambands Afríku að aflýsa Afríkumótinu sem fram fer í Marokkó í janúar vegna Ebóluveirunnar sem herjar á álfuna. Veiran hefur nú þegar leitt þúsundir manna til dauða síðan hún fór að ganga á milli manna fyrr á þessu ári, og er hætt við að hún gæti smitast hratt út þegar margir eru saman komnir á einum stað eins og á svona stórmóti. Enyeama hefur áhyggjur af leikmönnum, stuðningsmönnum og dómurum og vill ekki að mótið fari fram fyrr en hættustigið er orðið minna. „Ég vona svo sannarlega að mótið fari ekki fram þegar horft er til alls fólksins sem mun ferðast um álfuna. En ég stýri ekki knattspyrnusambandinu og tek engar ákvarðanir,“ sagði markvörðurinn eftir markalaust jafntefli Lille og Everton í Evrópudeildinni í gærkvöldi. „Þetta er mikil áhætta fyrir alla því þegar þú ferð til Afríku eru allir að faðma þig og heilsa þér. Hvað getur þú gert? Þú ert í hættu. En ef mótið fer fram og við komumst þangað þá mun ég spila,“ Vincent Enyeama. Nígería er ríkjandi Afríkumeistari, en liðið er í vandræðum í undankeppninni og þarf að vinna báða leiki sína sem eftir eru þar og vonast eftir hagstæðum úrslitum bara til að eiga möguleika á að verja titilinn.
Fótbolti Mest lesið Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Körfubolti Rekinn án skýringa og ætlar í mál Handbolti Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Körfubolti Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Körfubolti Stelpurnar okkar kættu hundruð aðdáenda og Glódís gaf óvænta gjöf Fótbolti Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Golf Mikael sá rautt eftir áflog í göngunum Fótbolti Brynja og Svíinn fögnuðu eftir magnað kvöld í Sjallanum Sport ÍBV - FH | Lið með nýja þjálfara stimpla sig inn í Bestu deildina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta konan sem stýrir karlaliði í einni bestu deild Evrópu Mikael sá rautt eftir áflog í göngunum Sunderland - Tottenham | Kemur De Zerbi Spurs úr fallsæti? ÍBV - FH | Lið með nýja þjálfara stimpla sig inn í Bestu deildina Íslensku stelpurnar skoruðu þremur mörkum færri en Danir en unnu samt „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Draumark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Stelpurnar okkar kættu hundruð aðdáenda og Glódís gaf óvænta gjöf Stefán Teitur kom Hannover í þriðja sæti Titillinn blasir við Börsungum Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin Sjáðu Ara koma til bjargar með fallegu marki Seiglusigur Hearts sem heldur toppsætinu Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi Sænskan gengur hægt en allt annað upp á tíu „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Þetta er högg í andlitið“ Orri örfáum sekúndum frá því að vera hetjan Skjálfti í Skyttunum „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Tekur Conte aftur við ítalska landsliðinu í sumar? Allt í blóma utan vallar en þjálfarinn ekki ánægður með Endrick Bjarni Guðjóns í garðyrkjuhönskum á opnunarleiknum Sjá meira