Erlent

Breski herinn farinn frá Afganistan

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fór til Afganistan fyrr í mánuðinum.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fór til Afganistan fyrr í mánuðinum. Vísir/Getty
Búið er að loka seinustu herstöð Breta í Afganistan og hafa afganskar öryggissveitir nú tekið við stjórn stöðvarinnar. Þar með lýkur hernaði Breta í landinu en breskar hersveitir réðust inn í Afganistan árið 2001.

453 breskir hermenn létu lífið í átökum í landinu. Þegar mest lét árið 2009 voru yfir 10 þúsund hermenn frá Bretlandi í Afganistan, að því er kemur fram í frétt BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×