Erlent

Björguðu hesti sem sat fastur í sundlaug

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot
Slökkviliðsmenn voru kallaðir til í Phoenix í Bandaríkjunum eftir að hestur hafði ráfað ofan í sundlaug. Þangað hafði hann farið til að fá sér vatn, en hann féll ofan í laugina þar sem hann sat fastur.

Þar að auki voru dýralæknar kallaðir út til að svæfa dýrið. Slökkviliðsmenn settu svo bönd utan um hestinn þar sem hann lá sofandi í lauginni.

Slökkviliðsstjórinn Forrest Smith sagði AP fréttaveitunni að hestinum hefði ekki orðið meint af aðförum slökkviliðsmannanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×