Fótbolti

Fyrirliði Suður-Afríku skotinn til bana

Senzo Meyiwa.
Senzo Meyiwa. vísir/getty
Fyrirliði knattspyrnulandsliðs Suður-Afríku, Senzo Meyiwa, var myrtur á heimili sínu í dag.

Nokkrir menn brutust inn á heimili hans og ætluðu að ræna hann. Átök urðu á heimilinu sem enduðu með því að Meyiwa var skotinn til bana.

Hann var í eldlínunni með félagi sínu, Orlando Pirates, í gær er liðið komst í undanúrslit deildabikarsins.

Lögreglan í Suður-Afríku er til í að greiða fyrir upplýsingar sem gætu leitt handtöku morðingja hans en það ku hafa verið þrír menn sem brutust inn til Meyiwa.

Þeir flúðu hlaupandi eftir morðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×