Var að verja kærustuna þegar hann var skotinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2014 09:00 Senzo Meyiwa. Vísir/Getty
Mikil sorg er nú í Suður-Afríku vegna morðsins á fyrirliða fótboltalandsliðsins, Senzo Meyiwa, en hann var skotinn til bana á heimili sínu í gær. Nýjustu fréttir af málinu frá lögreglunni á staðnum eru þær að Senzo Meyiwa hafi verið að verja kærustu sína, söngkonuna Kelly Khumalo, þegar hann var skotinn. Senzo Meyiwa var 27 ára gamall markvörður sem hafði spilað allan sinn feril með liði Orlando Pirates og hafði tekið við fyrirliðabandi landsliðsins í undankeppni Afríkumótsins 2015. Lögreglan hefur talað við eiginkonu hans Kelly Khumalo og samkvæmt frásögn hennar brutust tveir menn inn á heimili þeirra til að stela verðmætum eins og farsímum, peningum og öðru. Lögreglan hefur það síðan eftir kærustunni að Senzo hafi verið skotinn í bakið þegar hann stökk til að verja konu sína þegar innbrotsþjófur beindi byssu sinni að henni. Hetjuleg framkoma Senzo Meyiwa hafi orðið honum að bana því skotið fór inn í bakið og út um brjóstkassann og hann lést síðan á sjúkrahúsi. Kelly Khumalo þurfti áfallahjálp eftir hræðilega atburði gærdagsins en lögreglan leitar nú þriggja manna í tengslum við morðið. Lögreglan hefur lofað Suður-afrísku þjóðinni að finna morðingjana og meðal annars eru í boði fundarlaun fyrir þá sem geta hjálpað við lausn málsins.
Fótbolti Tengdar fréttir Fyrirliði Suður-Afríku skotinn til bana Fyrirliði knattspyrnulandsliðs Suður-Afríku, Senzo Meyiwa, var myrtur á heimili sínu í dag. 26. október 2014 22:20 Mest lesið Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport Rikki G kafnaði aftur í beinni útsendingu Fótbolti Stækkaði typpi skíðastökkvara Sport Wolves - Arsenal | Mega ekki misstíga sig gegn botnliðinu Enski boltinn Undir pressu vegna tengsla við Epstein: „Ég get ekki rekið hann“ Sport Hélt að hundurinn sem hljóp inn á brautina væri úlfur Sport Þurfti að flauta af æfingar áður en hann slasaði menn Körfubolti Fær um þrjátíu milljónir í sárabætur frá ríkasta manni Úkraínu Sport Skýtur skökku við: Beindi spjótum sínum að Mourinho Fótbolti „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistaradeildinni Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Elísa skoraði glæsimark hjá Fanneyju en Blikar töpuðu 11-1 samanlagt Gordon bakarameistarinn í bökun í Bakú Wolves - Arsenal | Mega ekki misstíga sig gegn botnliðinu „Af hverju ætti hann að vera að setja treyjuna yfir munninn?“ Sverrir frá Eyjum til FH Benítez valtur í sessi og gamall lærisveinn hans gæti stýrt Sverri Sparar ekki stóru orðin í garð Íslendingsins sem gæti farið alla leið í boltanum Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Dansinn hjá Vinicius, draumaleikur Doué og fimmfaldur fögnuður Valdimar fer ekki til Mexíkó Skýtur skökku við: Beindi spjótum sínum að Mourinho Segist ekki hafa kallað Vinicius apa og Benfica bakkar hann upp „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Rikki G kafnaði aftur í beinni útsendingu Draumabyrjun hjá Dortmund eftir frestun PSG sneri skelfilegri stöðu í Mónakó Madrídingar sóttu sigur eftir mikil læti í Lissabon Saka verður sá launahæsti Klopp hringdi bjöllu og hitti hetjuna sína á ÓL Sagði starfi sínu lausu en fær ekki að fara Gamla konan fékk slæman skell en Galatasaray skellihlær Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Luis Enrique segir orð gullknattarhafans „einskis virði“ Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Þrjátíu leikja bann: Hljóp reiður inn á og í áttina að Elíasi Stjörnum prýtt lið Englands endurheimtir sterka leikmenn fyrir leik gegn Íslandi Utan vallar: Eins og að missa ljósleiðarann og þurfa að nota aftur gamla módemið „Við vitum hvað við gerðum við konunga Meistaradeildarinnar“ Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Sjá meira
Fyrirliði Suður-Afríku skotinn til bana Fyrirliði knattspyrnulandsliðs Suður-Afríku, Senzo Meyiwa, var myrtur á heimili sínu í dag. 26. október 2014 22:20