Erlent

Nemandi skaut kennara í miðjum tíma

Samúel Karl Ólason skrifar
Forsætisráðherra Eistlands segir árásina vera áfall fyrir þjóðina.
Forsætisráðherra Eistlands segir árásina vera áfall fyrir þjóðina. Vísir/AFP
Kennari lést er nemandi skaut hann í miðjum tíma í bænum Viljandi í Suður-Eistlandi. Engan annan sakaði í árásinni og lögreglan hefur handsamað nemandan sem er fimmtán ára gamall.

Samkvæmt AP fréttaveitunni var vopnið skráð á föður drengsins, en ástæða árásarinnar liggur ekki fyrir.

Taavi Roivas, forsætisráðherra Eistlands, segir atvikið vera áfall fyrir þjóðina, en þetta er fyrsta skotárás í skóla í Eistlandi í sögu þjóðarinnar. Lögreglan vinnur nú að rannsókn málsins og vildi ekki gefa fleiri upplýsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×