Erlent

Meint árás á David Cameron á misskilningi byggð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skjáskot úr upptökunni sem náðist í dag.
Skjáskot úr upptökunni sem náðist í dag.
Maður hljóp í áttina að David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, að loknum fundi í borginni Leeds á Englandi í dag. Myndband náðist af uppákomunni þar sem öryggisvörður nær á síðustu stundu að koma í veg fyrir að ónafngreindur maður nái til ráðherrans.

Lögreglan í Vestur-Jórvíkurskíri handtók manninn en sleppti honum skömmu síðar. Í ljós kom að maðurinn var einfaldlega úti að skokka.

„Þetta var ekkert alvarlegt, maðurinn einfaldlega á röngum stað á röngum tíma,“ hefur BBC eftir lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×