Erlent

Löfven mundi ekki nöfnin á kollegunum

Atli Ísleifsson skrifar
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar. Vísir/AFP
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, átti í mestu vandræðum með að muna nöfnin á gestum sínum á fyrsta fréttamannafundi forsætisráðherra aðildarríkja Norðurlandaráðs í gærkvöld.

Eftir að hafa kynnt Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, til leiks var komið að Anne Sulling, ráðherra utanríkisviðskiptamála Eistlands. Skyndilega kom upp mjög vandræðaleg þögn enda ljóst að nafn Sulling var með öllu stolið úr Löfven sem bað aðstoðarmenn sína um lista með nöfnum allra fulltrúanna.

Löfven komst nokkuð hnökralaust í gegnum kynninguna á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þó að Löfven hafi einnig þurft að lesa nafn íslenska forsætisráðherrans upp af blaði.

Eystrasaltsríkin hafa sent fulltrúa á þing Norðurlandaráðs síðustu ár, en þingið fer nú fram í Stokkhólmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×