Rúmlega 24 milljarða króna tjón Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2014 12:14 Sprengingin var mjög stór. Vísir/AP
Ómönnuð geimflaug sprakk við flugtak í Flórída í Bandaríkjunum í gær. Fjöldi manns fylgdist með flugtakinu út um allan heim. Þetta er fyrsta slíka slysið síðan Geimvísindastofnun Bandaríkjanna byrjaði að ráða verktaka til að ferja birgðir til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Í flauginn voru rúm tvö tonn af birgðum til geimstöðvarinnar, en þær eru ekki sagðar hafa verið geimförunum lífsnauðsynlegar. Allt í allt eru skaðinn talin nema um tvö hundruð milljónum dala, eða rúmum 24 milljörðum króna. Á hverju ári greiðir NASA fyrirtækjunum Orbital Sciences og SpaceX marga milljarða dala fyrir flutningana, eftir að geimskutlur NASA voru teknar úr notkun. AP fréttaveitan segir að þetta fyrirkomulag muni verða fyrir mikilli gagnrýni eftir slysið. Frá Orbital Sciences hafa fengist þær upplýsingar að enginn hafi slasast og skemmdir hafi einskorðast við fasteignir og búnað á skotstað. Varaforseti fyrirtækisins, Frank Culbertson, segir að fyrsta spreningin hafi orðið um tíu til tólf sekúndum eftir flugtak. Þegar tuttugu sekúndur voru liðnar hafði flaugin hrapað aftur til jarðar þar sem gífurlega stór sprenging varð. Þetta var í annað sinn sem reynt var skjóta flauginni á loft, en skotinu var frestað á mánudagskvöldið eftir að seglskúta hafði slæðst inn á hættusvæði við skotsvæðið. Hættusvæðið er sett upp ef slys skyldu eiga sér stað, eins og gerðist í gær. Culbertson segir að slysið verði rannsakað til hins ítrasta og að þeir muni komast að orsökum þess. NASA og flugumferðaryfirvöld í Bandaríkjunum taka þátt í rannsókninni. „Við munum komast að því hvað gerðist, vonandi fljótlega, og við munum halda starfi okkar áfram. Við höfum öll séð þetta gerast áður í okkar starfi og við höfum séð aðra jafna sig á þessu. Við munum gera það einnig.“Vísir/APVísir/AP
Tengdar fréttir Fylgstu með í beinni: Geimfari skotið á loft í kvöld Geimfarið Antares er á leið til alþjóðlegu geimstöðvarinnar með rúmlega tvö þúsund kíló af byrgðum í farteskinu. 28. október 2014 20:37 Sjáðu myndbandið: Geimfarið Antares sprakk í loft upp Geimfarið var mannlaust og ekki er talið að nokkurn hafi sakað í sprengingunni, sem sýnd var í beinni um heim allan. 28. október 2014 22:34 Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Fleiri fréttir Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Sjá meira
Fylgstu með í beinni: Geimfari skotið á loft í kvöld Geimfarið Antares er á leið til alþjóðlegu geimstöðvarinnar með rúmlega tvö þúsund kíló af byrgðum í farteskinu. 28. október 2014 20:37
Sjáðu myndbandið: Geimfarið Antares sprakk í loft upp Geimfarið var mannlaust og ekki er talið að nokkurn hafi sakað í sprengingunni, sem sýnd var í beinni um heim allan. 28. október 2014 22:34