Suarez segir að Liverpool hefði ekki barist um titilinn án hans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2014 12:15 Luis Suárez. Vísir/Getty
Luis Suárez er nú búinn að segja það opinberlega sem flestir knattspyrnuáhugamenn eflaust hugsa. Liverpool hefði ekki barist um titilinn í fyrra ef hans hefði ekki notið við. Liverpool seldi Suárez til Barcelona í haust en hann er enn ekki búinn að spila mótsleik fyrir spænska liðið þar sem hann er enn að taka út leikbann fyrir að bíta Ítalann Giorgio Chiellini í öxlina á HM í Brasilíu í sumar. Luis Suárez missti af sex fyrstu leikjunum á síðasta tímabili þar sem hann tók út bann fyrir að bíta Chelsea-manninn Branislav Ivanovic. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann yrði markahæsti leikmaður deildarinnar og hjálpaði Liverpool að ná öðru sætinu og komast í Meistaradeildina. „Ég fór frá Liverpool með höfuðið hátt því án mín þá hefði Liverpool ekki staðið sig svona vel. Það var markmið hjá mér að koma liðinu í Meistaradeildina," sagði Luis Suárez við Daily Mirror. „Það er alltaf ánægjulegt þegar gengur vel hjá manni og maður gleðst yfir því að fá laun erfiðisins. Ég set samt alltaf liðið í fyrsta sæti og Liverpool var svo nálægt því að vinna titilinn. Það hefði verið stórkostlegt," sagði Suárez. „Ég kann alveg að meta það sem liðið gerði. Ég missti samt af sex leikjum og skoraði öll mín mörk í ensku úrvalsdeildinni án þess að taka vítin," sagði Suárez sem auk þess að skora 31 mark í ensku úrvalsdeildinni á síðust leiktíð þá lagði hann einnig upp 21 mark til viðbótar fyrir félaga sína. Liverpool hefur ekki byrjað tímabilið alltof vel án hans en liðið er eins og stendur í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 3 sigra í fyrstu 7 leikjunum.
Enski boltinn Mest lesið „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf McIlroy varði Masters-titilinn Golf „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ Íslenski boltinn „Tilfinningin ólýsanleg að sjá boltann í netinu“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Íslenski boltinn Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl Íslenski boltinn Fleiri fréttir Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Sjá meira