„Ein bestu kaup ferilsins að fá Kára“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2014 13:00 Kári, Evans og Albert Tatlock. Vísir
Steve Evans, knattspyrnustjóri Rotherham United, segir að ein bestu kaup síns ferils hafi verið að fá landsliðsmanninn Kára Árnason frá Aberdeen í Skotlandi fyrir rúmum tveimur árum síðan. Evans var þá nýtekinn við liði Rotherham og þurfti miðvörð til að styrkja varnarleik liðsins. Þegar félagið kom auga á Kára í Skotlandi var Evans staðráðinn í að ná í kappann. Hann þurfti þó að sannfæra Kára talsvert enda lék liðið þá í ensku D-deildinni. „Það var aðalnjósnarinn okkar sem fann hann og við mundum óljóst eftir honum frá því að hann spilaði með Plymouth í B-deildinni,“ sagði Evans í viðtali við dagblaðið The Star í Englandi. „Við fórum nokkrum sinnum til Skotlands og sáum hann spila. Craig Brown, þáverandi stjóri liðsins, er góður vinur minn og hann sagði að Kári hafi gert sér fyllilega ljóst að hann vildi snúa aftur til Englands.“ „Ég varði 2-3 vikum í að ræða við Kára í síma og flaug til Íslands til að sannfæra hann um að koma og kíkja á nýja leikvanginn okkar sem var þá í smíðum. Hann leit við þegar hann var á leið til Frakklands til að spila með íslenska landsliðinu. Ég fór á leikinn og hann var frábær.“ „Ég sannfærði um að við gætum komist upp í Championship-deildina (B-deildina). Ég reyndi allt sem ég gat til að sannfæra hann um að hann gæti hjálpað okkur að ná því markmiði og hann hefur verið frábær.“ „Kaupin á honum eru meðal þeirra allra bestu sem ég hef gert á mínum ferli,“ sagði Evans enn fremur en bætir þó við að Kári sé gjarn á að kvarta við minnsta tilefni. Hann kalli hann Albert Tatlock sem er þekkt persóna úr sápuóperunni Coronation Street sem sýnd hefur verið í bresku sjónvarpi frá 1960. „Hann er alveg eins og Albert Tatlock og kvartar undan bókstaflega öllu. En samt ekki á neikvæðan hátt enda er hann mikið góðmenni. Við eigum frábært samband og það ríkir mikil gagnkvæm virðing okkar á milli. Ég held að hann elski að spila fyrir okkur en það myndi hann aldrei segja upphátt því hann kvartar svo mikið.“ Sjálfur tekur Kári undir þetta að nokkru leyti og ber af sér að þetta sé séríslenskt einkenni. „Svona er ég bara. Ég finn alltaf einhverja galla við mína frammistöðu og liðsins. En það er bara vegna þess að ég er fullkomnunarsinni.“
Enski boltinn Mest lesið Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Íslenski boltinn Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Fótbolti Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Golf Fleiri fréttir Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Sjá meira