Erlent

Fjórir létust þegar sprengjur féllu á íbúðahverfi í Donetsk

Fjórir létu lífið og níu særðust þegar sprengjur féllu á íbúðahverfi í borginni Donetsk í austurhluta Úkraínu í gær. Svæðið er á valdi aðskilnaðarsinna sem kenna úkraínska hernum um árásina.

Sprengjurnar féllu á íbúðarblokk í austurhluta borgarinnar ekki langt frá alþjóðaflugvellinum sem er nú á valdi úkraínska hersins. Harðir bardaga geisuðu um flugvöllinn í ágúst og nokkrum sinnum hefur komið til skotbardaga á svæðinu á síðustu vikum þrátt fyrir vopnahléið sem var undirritað í síðasta mánuði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×