Málmtæring vandamál í langdregnu eldgosi Svavar Hávarðsson skrifar 10. janúar 2014 07:00 Mynd/Magnús Tumi Guðmundsson
Dragist eldgosið í Holuhrauni á langinn er viðbúið að tæring málma verði viðvarandi vandamál. Gosmökkurinn er ríkur af efnasamböndum sem geta verið mjög tærandi. Á þetta bendir Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sem segir að stofnunin hafi nú þegar fengið eina ábendingu um aukna ryðmyndun, sem tengd er gosmekkinum frá Holuhrauni. „Þessi efni sem um ræðir tæra flesta málma, en það er breytilegt hversu viðkvæmir þeir eru fyrir þessu. Ryðfrítt stál stendur þetta kannski af sér, en flestir aðrir málmar tærast. Mesti skaðvaldurinn varðandi tæringu er brennisteinsdíoxíðið sjálft en hluti þess getur breyst í brennisteinssýru eftir efnahvörf við rakann í andrúmsloftinu. Svo koma einnig upp, þótt í miklu minna magni sé, saltsýra og flússýra. Samanlagt geta þessar sýrur haft töluverðan tæringarmátt,“ segir Þorsteinn. Eins og komið hefur fram hafa jarðvísindamenn þráfaldlega bent á að líkur eru á því að eldsumbrot í og við Vatnajökul gætu staðið árum saman. Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur, er t.d. þess fullviss að lokist sprungan í Holuhrauni á næstunni, þá sé aðeins tímaspursmál hvenær byrjar að gjósa annars staðar - undir jökli eða á svipuðum slóðum og nú er. Þorsteinn segir að vissulega sé inni í myndinni að tæringin stytti líftíma burðarvirkja raflína, fjarskiptamastra eða þakjárns. Hins vegar sé það viðkvæmari tæknibúnaður sem lætur fyrst á sjá. Guðlaugur Sigurgeirsson, deildarstjóri netrekstrar hjá Landsneti, segir að fyrirtækið hafi tekið ákvörðun um að láta kanna hugsanleg áhrif mengunarinnar á mannvirki og búnað. Hann segir enga ástæðu til að álykta að mengunin hafi nefnd áhrif - sérstaklega ekki þegar til skamms tíma er litið, en nauðsynlegt hafi verið að hafa vaðið fyrir neðan sig standi eldgosið mánuði, eða jafnvel ár. Margir þekkja til vandamála sem fylgja útblæstri brennisteinsvetnis eins og t.d. frá Hellisheiðarvirkjun. Guðlaugur segir merki þess að vetnið sé tærandi. „Við vildum því láta gera athugun á þessari ógn til að hafa vaðið fyrir neðan okkur,“ segir Guðlaugur og bætir við að helst sé litið til viðkvæms búnaðar. Burðarvirkin séu ekki áhyggjuefni núna, heldur frekar viðkvæmur stjórnbúnaður sem tengist fjarstýringu á virkjum frá höfuðstöðvunum í Reykjavík.
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Sjá meira