Mexíkóskur stjórnmálamaður kallaði Ronaldinho apa Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. september 2014 22:15 Ronaldinho er mættur til Mexíkó. vísir/getty
Það eru ekki allir í Querétaro-ríkinu í Mexíkó jafnánægðir með að Brasilíumaðurinn Ronaldinho spili með Querétaro-liðinu, en þessi fyrrverandi besti knattspyrnumaður heims samdi við mexíkóska félagið á dögunum. Gríðarlegur áhugi er á knattspyrnu í Mexíkó og ætlaði allt um koll að keyra í Querétaro þegar tilkynnt var að Ronaldinho hefði samið við liðið. Þegar hann var kynntur fyrir stuðningsmönnum félagsins á La Corrogidora-vellinum komust færri að en vildu og myndaðist mikil umferðarteppa nálægt vellinum. Þetta reiddi Carlos Manuel Trevinho, meðlim íhaldsflokksins í Mexíkó og fyrrverandi félagsmálaráðherra í Querétaro, til mikillar reiði og skrifaði hann á Facebook: „Ég reyni að sýna þessu skilning, en ég hata fótbolta og hvernig hann fær alla til að breytast í fávita. Ég hata fótbolta enn meira því hann fær fólk til að flykkjast út á götu og standa í vegi fyrir mér,“ skrifaði hann, en spænska íþróttablaðið Marca greinir frá. „Þetta allt saman verður til þess að það tekur mig tvo klukkutíma að komast heim. Og allt þetta bara til að sjá einhvern apa. Brasilíumann, en samt apa. Þessi sirkus er algjörlega fáránlegur.“ Trevinho þurfti fljótlega að henda færslunni vegna hundruða svara sem hann fékk frá bálreiðu fólki, en það var of seint. Yfirmenn knattspyrnuliðs Querétaro sendu svo frá sér tilkynningu vegna orða stjórnmálamannsins. „Kynþáttaníð er alvarlegt vandamál sem særir fólk. Okkar félag hafnar allri mismunun. Þetta er ofbeldi sem við þurfum að útrýma sem samfélag,“ sagði í yfirlýsingu stjórnarinnar. Félagið kallaði einnig eftir því að yfirvöld í borginni myndu skerast í leikinn og kröfðust þess að Trevinho yrði gerður að fordæmi.
Fótbolti Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ Sjá meira