Fótbolti

Þægilegur sigur PSG

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Getty
PSG vann Bastia nokkuð þægilega, 2-0, á heimavelli í kvöld. Mörkin tvö komu í sitthvorum hálfleiknum.

Lucas Moura kom PSG yfir eftir 26. mínútna leik og þannig var staðan í hálfleik. Edinson Cavani tvöfaldaði svo forystuna eftir tæpa klukkustund og lokatölur urðu 2-0.

Zlatan Ibrahimovic fór meiddur af velli eftir fimmtán mínútna leik og vonandi fyrir PSG er Zlatan ekki alvarlega meiddur.

Eftir tvo leiki er PSG með fjögur stig, en þeir gerðu jafntefli við Reims í fyrsta leik. Bastia er með eitt stig, eftir jafntefli við Marseille í fyrstu umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×