Stýra ljósunum með andardrættinum Álfrún Pálsdóttir skrifar 24. maí 2014 17:00 Anna Þorvaldsdóttir frumflytur verk sitt með ICE í Hörpu á morgun. Vísir/Vilhelm
Þetta er nokkuð stórt verkefni sem hefur verið í bígerð í tvö og hálft ár,“ segir tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir sem heimsfrumflytur verk sitt In the Light of Air í Hörpu annað kvöld. Það er hinn virti bandaríski nútímatónlistarhópur International Contemporary Ensemble, ICE, frá New York sem flytur verkið ásamt Önnu en hópurinn sérpantaði verkið. Verkið er umfangsmikið, fjörutíu mínútna langt og í fjórum þáttum sem bera nöfnin Luminance, Serenity, Existence og Remembrance. „Þau vildu langt verk sem rúmaði heila tónleika. Ég vildi semja það fyrir fáa hljóðfæraleikara þar sem planið er að flakka um heiminn með verkið. Það er ótrúlega gaman að geta frumflutt það hér á Listahátíð en svo förum við til Washington og New York,“ segir Anna sem stýrir rafhljóðum og er með innsetningar úr Klakaböndum Svönu Jósepsdóttur á tónleikunum. „Þetta er miklu meira en bara tónleikar en með okkur eru tæknimenn og ljósahönnuður sem lætur ljósin stýrast af andardrætti hljóðfæraleikarana sem gefur áhorfendum sjónræna upplifun.“ Verk Önnu eru flutt reglulega í Evrópu og í Bandaríkjunum og hafa hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun. Hún hlaut Norrænu tónlistarverðlaunin árið 2012 fyrir hljómsveitarverkið Dreymi. Anna hlakkar mjög til að flytja verkið á Íslandi en gefur sér lítinn tíma sjálf til að flakka á milli viðburða á Listahátíð. „Ég ætla að reyna að sjá eins mikið og ég get en er að æfa alla helgina og svo förum við út fljótlega eftir helgi til að flytja verkið í Washington.“
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Lífið Fleiri fréttir Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Sjá meira