Elsti áll í heimi dauður eftir 155 ár í brunni Atli Ísleifsson skrifar 8. ágúst 2014 09:52 Állinn í Brantevík á Skáni var með ónáttúrulega stór augu eftir árin öll í myrkri brunnsins. Á myndinni er annar áll. Vísir/Getty
Áll sem hefur synt um í brunni á Skáni í Svíþjóð í 155 ár er dauður. Á vef sænska ríkissjónvarpsins segir að um elsta ál í heimi sé að ræða. „Vissulega er þetta sorglegt, ég hef vitað af honum síðan ég var lítill en nú er hann farinn,“ segir Tomas Kjellman, eigandi brunnsins sem er í bænum Brantevik á austurhluta Skánar. Álnum var komið fyrir í brunninum árið 1859 af Samuel nokkrum Nilsson og hefur synt þar um á miklu dýpi. Stuðlaði myrkrið að því að augu álsins urðu ónáttúrulega stór. Állinn vakti fyrst athygli þegar innslag um hann var unnið fyrir sænska náttúrulífsþáttinn Mitt i naturen í sænska ríkissjónvarpinu. Þá var minnst á álinn í bók rithöfundarins Fritiof Nilsson Piraten, „Bombi Bitt og ég“ sem út kom 1932. Kjellman og fjölskylda er þó enn með annan ál í öðrum brunni á jörð sinni, en sá er einungis talinn vera um 110 ára gamall. Hræið hefur nú verið fryst og flutt til Stokkhólms þar sem sérfræðingar hyggjast komast að nákvæmum aldri fisksins með því að skoða kvarnir fisksins.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira