Fótbolti

Viðar Örn eftirsóttur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Stöðvar 2 eru lið frá Ítalíu, Hollandi, Frakklandi og Englandi á höttunum eftir Viðari Erni Kjartanssyni, leikmanni Valerenga sem hefur slegið í gegn á sínu fyrsta tímabili í Noregi.

Valerenga sem hefur verið í fjárhagsvandræðum undanfarið gæti neyðst til þess að selja Viðar og gæti það komið sér vel fyrir Fylki og Selfoss. Þegar Viðar var seldur var sett inn í samninginn að íslensku félögin myndu fá samanlagt 15% af upphæðinni sem Viðar yrði seldur á.

Viðar hefur verið einfaldlega óstöðvandi í Noregi en hann hefur skorað þrettán mörk í fimmtán leikjum í norsku úrvalsdeildinni og er hann markahæstur í henni.

Talið er að upphæðin sem Valerenga vilji fá fyrir Viðar sé á bilinu 3-4 milljónir evra eða á bilinu 460-620 milljónir íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×