Erlent

Sex létust í óveðri í Þýskalandi

Randver Kári Randversson skrifar
Þrír létust í óveðrinu í Dusseldorf í nótt
Þrír létust í óveðrinu í Dusseldorf í nótt Vísir/AFP
Sex manns létust í miklu óveðri sem gekk yfir vesturhluta Þýskalands í nótt. BBC greinir frá þessu.

Í Dusseldorf létust þrír, og þrír aðrir slösuðust þegar tré féll á garðskýli sem fólkið hafði leitað skjóls í. Þá létust tveir hjólreiðamenn í borgunum Cologne og Krefeld þegar tré féllu á þá. Einn til viðbótar lést í Essen.

Miklar raskanir urðu á almenningssamgöngum í öllu Nordrhein-Westfalen fylki , og var fólki sérstakleg ráðlagt frá því að ferðast til Dusseldorf, þar sem miklar raskanir urðu á lestar-, vega- og flugsamgöngum.

Veðrið færist nú í norðausturátt til svæðanna norður og vestur af Berlín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×