Byrjaði hópslagsmál á leikskólahátíð Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. júní 2014 13:28 Lögreglan í Ohio leitar nú Walker.
Lögreglan í Ohio leitar nú manns sem er grunaður um að hafa ráðist á annan mann við útskrift fimm ára barna úr leikskóla. Árásin átti sér stað í matsal leikskólans og í kjölfar hennar hófust hópslagsmál og telur lögreglan að um tuttugu manns hafi tekið þátt í þeim. Maðurinn, sem heitir Raymond Walker, er þrjátíu og þriggja ára og var staddur í útskriftarathöfn í leikskólanum í bænum Mt. Healthy, í grennd Cincinnatiborgar. Í athöfninni sá hann mann að nafni Domique Garnett, en þeir þekkjast frá fyrri tíð og er talið að Walker hafi átt eitthvað sökótt við hann. Walker gekk að Garnett og sló hann í andlitið inni í matsal leikskólans. Margir gengu á milli mannanna tveggja og endaði það í hópslagsmálum að sögn lögreglunnar í Ohio. Walker gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir grófa líkamsárás og fyrir að vera upphafsmaður að hópslagsmálunum, en sérstök lög ná yfir það. Grunnskóla, í sömu byggingu og leikskólinn er í, var lokað á meðan slagurinn átti sér stað, lögreglan vildi forða skólabörnum frá því að lenda á milli þeirra sem slógust. Lori Handler, yfirkennari í leikskólanum, var mjög brugðið þegar blaðamenn höfðu samband við hana í gær. „Það var hrikalegt fyrir fimm ára börnin mín að þurfa að horfa upp á þetta. Það er hreinlega sorglegt að fullorðið fólk geti ekki hagað sér við þessar aðstæður.“ Hún sagði það vera lán í óláni að útskriftarathöfninni hafi verið lokið þegar slagsmálin brutust út. „Við ætlum að fara í þetta mál af fullri hörku. Við ætlum að kæra þá sem komu að málinu, bæði fyrir líkamsárásina og fyrir þetta óeirðarástand,“ bætir Handler við. Lögreglan hefur áður þurft að hafa afskipti af Walker, hann hefur verið dæmdur fyrir alvarleg umferðarlagabrot og sat í fangelsi í níu mánuði. Hann reyndi að flýja þegar lögreglumenn reyndu að stöðva hann og endaði eltingaleikurinn þegar Walker keyrði á tré með þeim afleiðingum að kona sem var með honum í bíl slasaðist. Lögreglan leitar nú Walker og er lýst eftir honum í fjölmiðlum í Bandaríkjunum.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Sjá meira