Norður-Kóreubúi tekinn af lífi fyrir ólöglegt símtal Samúel Karl Ólason skrifar 23. maí 2014 19:33 Vísir/AFP
Ri Kyung Ho, 49 ára íbúi Norður-Kóreu sem býr í norðurhluta landsins var tekinn af lífi í mars fyrir að hafa hringt til Suður-Kóreu og hjálpað fólki að flýja land. Samkvæmt heimildum DailyNK var fjölskylda hans fangelsuð eftir aftökuna. Guardian hefur einnig fjallað um málið. Aftakan er hluti af átaki stjórnvalda gegn farsímanotendum og smyglurum sem hófst í fyrra. Nýverið var hegningarlögum landsins breytt. Aftakan mun hafa verið notuð til að hafa áhrif á aðra íbúa landsins, en var þó ekki opinber. Samkvæmt heimildum DailyNK var Ri Kyung Ho handsamaður eftir að hann hringdi í ættingja sína í Suður-Kóreu. Öryggissveitir nota búnað sem greinir símabylgjur til að hafa uppi á fólki sem hringir úr farsímum. „Hann hafði líklega ekki tíma til að taka símann í sundur og fela hann áður en útsendararnir komu heim til hans,“ segir ónefndur heimildamaður DNK. Við yfirheyrslur kom í ljós að Ri Kyung Ho hafði ekki eingöngu hringt reglulega til Suður-Kóreu, heldur hafði hann einnig hjálpað fólki að flýja Norður-Kóreu. Að minnsta kosti fimm ára „endurmenntun“ eða dauði eru mögulegar refsingar fyrir að hafa samband við aðila fyrir utan landsteina Norður-Kóreu. Fyrir það eitt að horfa á sjónvarpsútsendingar eða hlusta á útvarpsstöðvar frá Suður-Kóreu er refsingin tíu ára „endurmenntun“ hið minnsta. Lágmarksrefsing fyrir fíkniefnasmygl eru fimm ára „endurmenntun“.
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Sjá meira