Erlent

Þrír mótmælendur látnir í Bangkok

Vísir/AFP
Þrír eru látnir og rúmlega tuttugu slasaðir eftir árás sem gerð var á búðir mótmælenda í Bangkok, höfuðborg Tælands í morgun.

Vitni greina frá því að skothríð og sprengingar hafi heyrst á svæðinu en mótmælendurnir krefjast þess að bráðabirgðaríkisstjórnin sem situr í landinu fari þegar frá völdum og að utanþingsstjórn verði komið á fót uns hægt verði að halda kosningar.

Stjórnvöld halda hinsvegar fast við sinn keip og segjast ekki ætla að halda kosningar fyrr en í júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×