Ólétt kona fékk marijúna ofan á borgara frá McDonalds Kjartan Atli Kjartansson skrifar 19. maí 2014 10:51 Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum
Lögreglan í Iowa í Bandaríkjunum hóf rannsókn á óvenjulegum glæp í síðustu viku, þegar par tilkynnti að það hefði fundið marijúana á hamborgara sem það keypti frá McDonalds. „Ég hef aldrei þurft að kafa svona djúpt ofan í ostborgara í neinni rannsókn á mínum ferli,“ segir Jason Bell, yfirmaður lögreglunnar í bænum Ottumwa í Iowafylki. Parið segist hafa keypt tvöfaldan ostborgara og tekið hann með sér heim. Þegar konan ætlaði að gæða sér á borgaranum tók hún eftir óvenjulegu grænu áleggi á honum. Parið grunaði strax að þetta væri marijúana. Þau tilkynntu málið til lögreglunnar og er rannsókn á málinu hafin. Starfsfólkið í því útibúi McDonalds sem seldi borgarann með þessu óvenjulega áleggi var yfirheyrt. Eiturlyf fundust á einum starfsmanni, en að sögn lögreglumannsins Bell er ekki víst að sá sé sekur í málinu. Lögreglan rannsakar alla króka og kima málsins og hefur meðal annars beint sjónum sínum að parinu sem tilkynnti um glæpinn. „Þetta eru alvarlegar ásakanir gegn svona fyrirtæki. Við viljum ganga úr skugga um að við komumst að réttri niðurstöðu,“ segir Bell í samtali við KCCI-fréttastofuna í Iowa. Lögreglan hefur sent sýni úr borgaranum á rannsóknarstofu og mun það væntanlega taka um mánuð að fá niðurstöðu úr þeirri rannsókn. Lögreglan vill ganga úr skugga um að þetta sé í raun marijúna sem hafi verið á borgaranum. Hefðbundnir tvöfaldir ostborgarar frá McDonalds eru með tveimur ostneiðum, súrum gúrkum, lauk, tómatsósu og sinnepi. Hér að neðan má sjá frétt frá sjónvarpsstöðinni KCCI um málið.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira