Neyðarástand vegna mænusóttar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. maí 2014 07:00 Bólusetning er eina leiðin til að koma í veg fyrir smit.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) segir að neyðarástand sé yfirvofandi vegna aukinnar útbreiðslu mænusóttar. Stofnunin segir að verði ekki gripið til aðgerða, muni mistakast að útrýma einum skæðasta sjúkdómi heims. Þetta er í annað sinn sem stofnunin lýsir yfir slíku neyðarástandi og var það síðast vegna svínaflensufaraldsins árið 2009. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að hættan sé mest í Kamerún, Pakistan, Sýrlandi, Afganistan, Miðbaugs-Gíneu, Eþíópíu, Írak, Ísrael, Sómalíu og Nígeríu. Því er mælt með því að fólk sem ferðist til þessara landa láti bólusetja sig, en bólusetning er eina leiðin til að koma í veg fyrir smit. Í nóvember á síðasta ári staðfesti WHO að tíu börn í Sýrlandi hefðu smitast af mænusótt, og var það í fyrsta sinn í fjórtán ár sem mænusótt varð vart í landinu og því töluvert bakslag fyrir baráttuna við að útrýma þessum skæða sjúkdómi sem varpar á sama tíma ljósi á mikilvægi bólusetninga. Mænusótt, sem einnig nefnist mænuveiki eða lömunarveiki, er bráðsmitandi veirusjúkdómur sem ræðst á taugakerfi manna og getur valdið varanlegri lömun á skömmum tíma. Engin lækning er við sjúkdómnum sjálfum en hægt er að hefta útbreiðslu hans með bólusetningu. Hættan á að lamast af völdum sjúkdómsins eykst með hækkuðum aldri. Mænusótt var landlæg um öll Vesturlönd allt fram á miðja 20. öld þegar bóluefni komu fyrst fram á sjónarsviðið.Talið er að veiruafbrigðið sé upprunnið í Pakistan og hafi komið til Sýrlands með pakistönskum vígamönnum sem þá tóku þátt í borgarastyrjöldinni. Baráttan gegn mænusótt á heimsvísu hefur gengið afar vel síðustu ár og er sjúkdómurinn nú aðeins landlægur í þremur löndum, Nígeríu, Pakistan og Afganistan, samanborið við 125 lönd fyrir aldarfjórðungi. Það er meðal annars að þakka átaki á vegum WHO og UNICEF með fulltingi Rótarýhreyfingarinnar og fleiri aðila. Árið 2013 er vitað til þess að 417 manns hafi smitast af mænusótt á heimsvísu.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira