Leikstjóri hýsir morðingja úr eigin kvikmynd Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. maí 2014 14:26 Frá vinstri: Bernie Tiede, Jack Black og Richard Linklater.
Fyrrverandi útfararstjórinn Bernie Tiede, sem dæmdur var árið 1999 í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða ekkju á níræðisaldri, hefur verið látinn laus úr fangelsi. Morðmálið var umfjöllunarefni kvikmyndarinnar Bernie sem kom út árið 2011 og fór leikarinn geðþekki Jack Black með hlutverk Tiedes í myndinni. Sækjendur í málinu hafa nú fallist á það að Tiede þurfi ekki að afplána dóminn þar sem hann var misnotaður kynferðislega í æsku og seinna kúgaður af fórnarlambi sínu, hinni 81 árs gömlu Marjorie Nugent. Dómari gaf leyfi fyrir því að Tiede fengi að búa í íbúð yfir bílskúr í borginni Austin í Texas en íbúðin er í eigu Richards Linklater, leikstjóra Bernie. Meðal mynda sem hann hefur leikstýrt eru School of Rock, Dazed and Confused og Before Sunrise-þríleikurinn.Fannst í frystikistu Tiede og Nugent kynntust árið 1990 og urðu nánir vinir, ferðuðust saman um heiminn og að lokum ákvað Nugent að Tiede skyldi erfa allar hennar eignir, um tíu milljónir dollara. Nugent hvarf árið 1996 en fannst að lokum í frystikistu á heimili sínu. Hún hafði verið skotin fjórum sinnum í bakið með riffli og játaði Tiede morðið á endanum. Sálfræðingur sem rannsakað hefur Tiede segir að samband hans við gömlu konuna hafi verið flókið og að hún hafi kúgað hann. Segir sálfræðingurinn að Tiede sé ekki ofbeldishneigður og að sér þyki ólíklegt að hann muni brjóta af sér aftur. Ættingjar Nugent hafa þó gagnrýnt ákvörðun dómarans harðlega.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira